Fara beint í efni
03 - Snjallheimili

Viltu láta snjalltækin á heimilinu vinna saman?

Lýsing, hiti, skynjarar, lásar og myndavélar - sett upp í eitt kerfi sem allir á heimilinu geta notað.

Snjalltæki eru orðin ódýr og aðgengileg, en þau tala ekki alltaf saman. Útkoman verður oft fimm öpp, ótraustar tengingar og sjálfvirkni sem enginn þorir að snerta.

Við hjálpum þér að velja tæki sem passa saman, setjum þau upp og búum til sjálfvirkni sem léttir daglegt líf: ljós sem kvikna þegar dimmir, hiti sem lækkar þegar enginn er heima, tilkynning ef vatn lekur.

Við vinnum með opnum stöðlum á borð við Matter, Thread og Zigbee, svo heimilið sé ekki bundið einum framleiðanda.

Snjallheimili

Heimili

Uppsetning og stillingar

frá 29.900 krónum

Tæki eru ekki innifalin í verði.

Fá tilboð

Verð með vsk. · Án skuldbindingar

01Kannastu við þetta?

Algeng einkenni

  • Mörg öpp fyrir tæki sem ættu að vinna saman
  • Snjallperur eða rofar sem detta úr sambandi
  • Sjálfvirkni sem virkar bara stundum
  • Óvissa um hvaða tæki á að kaupa
  • Þú vilt fylgjast með hita, raka eða leka þegar þú ert að heiman
02Það sem við gerum

Innifalið

  1. 01Ráðgjöf um tæki og kerfi sem passa saman
  2. 02Uppsetning á lýsingu, hitastýringu, skynjurum, lásum og myndavélum
  3. 03Sjálfvirkni sem er sniðin að heimilinu
  4. 04Eitt app eða eitt stjórnborð fyrir allt
  5. 05Kennsla fyrir alla á heimilinu
  6. 06Skráning á öllu sem sett var upp
03VerðUpphafsverð

Verð

Verð eru upphafsverð fyrir einföld verk. Ef verkið er umfangsmeira færðu verð áður en lengra er haldið.

  • Uppsetning og stillingar

    Tæki eru ekki innifalin í verði.

    frá 29.900 krónum
  • Heildarlausn fyrir heimilið

    Verð eftir umfangi og fjölda tækja.

    Tilboð
04Tæknilegar upplýsingar

Fyrir þau sem vilja vita meira

Staðlar
  • Matter
  • Thread
  • Zigbee
  • Wi-Fi-tæki
Kerfi
  • Apple Home
  • Home Assistant
Tæki
  • Lýsing og dimmar
  • Hitastýring og ofnlokar
  • Hreyfi-, hurða-, raka- og lekaskynjarar
  • Snjalllásar og myndavélar
05Spurningar

Algengar spurningar

Á ég að velja Apple Home eða Home Assistant?

Apple Home er einfalt og hentar vel ef allir á heimilinu nota iPhone. Home Assistant er sveigjanlegra og ræður við nánast hvaða tæki sem er, en krefst meiri uppsetningar. Við hjálpum þér að velja út frá því hvernig heimilið er notað.

Get ég notað tækin sem ég á nú þegar?

Oftast já. Við förum yfir það sem er til og segjum þér hvað er hægt að tengja saman og hvað ekki.

Hvað er Matter?

Matter er sameiginlegur staðall sem helstu framleiðendur standa að. Tæki sem styðja Matter virka í mörgum kerfum, svo hægt er að skipta um kerfi síðar án þess að skipta um tæki.

Virkar allt ef netið dettur út?

Það fer eftir uppsetningu. Þar sem hægt er setjum við sjálfvirkni upp þannig að hún keyri innan heimilisins, svo ljós og hiti virki þó að netsambandið rofni.

06Tengd þjónusta

Tengd þjónusta

  1. 01

    Við finnum hvers vegna netið er hægt eða dettur út - og lögum það. Stundum dugar ný stilling, stundum þarf betri staðsetningu eða auka aðgangspunkt.

    frá 14.900 krónumHeimiliFyrirtæki
  2. 02

    4G/5G-net fyrir sumarhús. Við mælum sambandið, finnum bestu staðsetninguna og setjum upp beini og Wi-Fi sem heldur tengingu.

    frá 24.900 krónumHeimiliFyrirtæki

Snjallheimili

frá 29.900 krónum
Fá tilboð

Tökum við nýjum verkefnum

Fáðu verð í verkið.

Segðu okkur frá aðstæðum og við svörum með mati og verði. Snjallheimili - án skuldbindingar.

Við svörum beiðnum innan eins virks dags.