Fara beint í efni
01 - Net & Wi-Fi

Wi-Fi nær ekki um allt húsið?

Við finnum hvers vegna netið er hægt eða dettur út - og lögum það. Stundum dugar ný stilling, stundum þarf betri staðsetningu eða auka aðgangspunkt.

Oftast er vandinn ekki hraðinn sem þú borgar fyrir, heldur hvernig hann dreifist um húsið. Steyptir veggir, gólfhiti, illa staðsettur beinir eða gamlar stillingar geta skilið heilu herbergin eftir sambandslaus.

Við mætum á staðinn, mælum sambandið herbergi fyrir herbergi og finnum orsökina. Síðan leggjum við til einföldustu lausnina sem virkar - áður en nokkur búnaður er keyptur.

Við stillum búnað frá öllum íslenskum fjarskiptafélögum en erum óháð þeim. Við seljum hvorki áskriftir né tengingar.

Net & Wi-Fi

Heimili · Fyrirtæki

Greining og lagfæring á staðnum

frá 14.900 krónum

Ef verkið reynist umfangsmeira færðu verð áður en lengra er haldið.

Fá tilboð

Verð með vsk. · Án skuldbindingar

01Kannastu við þetta?

Algeng einkenni

  • Gott samband í stofunni en ekkert inni í svefnherbergi
  • Myndsímtöl frjósa og streymi hleðst í sífellu
  • Netið dettur út nokkrum sinnum á dag
  • Nýr beinir frá fjarskiptafélaginu sem enginn hefur stillt
  • Mesh-kerfi sem virkar verr en það ætti að gera
  • Sjónvarp, prentari eða leikjatölva nær ekki tengingu
02Það sem við gerum

Innifalið

  1. 01Mæling á sambandi í öllum rýmum
  2. 02Greining á beini, stillingum og truflunum
  3. 03Uppsetning og stilling á beini frá fjarskiptafélagi
  4. 04Uppsetning á mesh-kerfi eða aðgangspunktum
  5. 05Snyrtilegur frágangur á búnaði og snúrum
  6. 06Stutt yfirferð: hvað var gert og af hverju
03VerðUpphafsverð

Verð

Verð eru upphafsverð fyrir einföld verk. Ef verkið er umfangsmeira færðu verð áður en lengra er haldið.

  • Greining og lagfæring á staðnum

    Ef verkið reynist umfangsmeira færðu verð áður en lengra er haldið.

    frá 14.900 krónum
  • Mesh-kerfi og aðgangspunktar

    Fer eftir stærð húsnæðis og fjölda punkta.

    Tilboð
04Tæknilegar upplýsingar

Fyrir þau sem vilja vita meira

Búnaður
  • Beinar frá íslenskum fjarskiptafélögum
  • Mesh-kerfi og aðgangspunktar (Wi-Fi 6, 6E og 7)
  • Netskiptar og Ethernet-lagnir
Stillingar
  • Rásaval og tíðnisvið - 2,4 / 5 / 6 GHz
  • Aðskilin net fyrir gesti og snjalltæki
  • Öryggisstillingar og uppfærslur á hugbúnaði
05Spurningar

Algengar spurningar

Þarf ég að kaupa nýjan búnað?

Ekki endilega. Við byrjum á að nýta það sem er til staðar. Ef nýr búnaður er nauðsynlegur útskýrum við hvers vegna og hvað hann kostar áður en nokkuð er keypt.

Getið þið stillt beini frá mínu fjarskiptafélagi?

Já. Við stillum búnað frá öllum helstu fjarskiptafélögum á Íslandi. Við erum óháð þeim og komum ekki fram fyrir þeirra hönd.

Hvað ef vandinn liggur hjá fjarskiptafélaginu?

Þá segjum við þér það strax og útskýrum hvað þú átt að biðja um, svo þú borgir ekki fyrir vinnu sem leysir ekki vandann.

06Tengd þjónusta

Tengd þjónusta

  1. 03

    Lýsing, hiti, skynjarar, lásar og myndavélar - sett upp í eitt kerfi sem allir á heimilinu geta notað.

    frá 29.900 krónumHeimili
  2. 02

    4G/5G-net fyrir sumarhús. Við mælum sambandið, finnum bestu staðsetninguna og setjum upp beini og Wi-Fi sem heldur tengingu.

    frá 24.900 krónumHeimiliFyrirtæki

Net & Wi-Fi

frá 14.900 krónum
Fá tilboð

Tökum við nýjum verkefnum

Fáðu verð í verkið.

Segðu okkur frá aðstæðum og við svörum með mati og verði. Net & Wi-Fi - án skuldbindingar.

Við svörum beiðnum innan eins virks dags.