Tækniþjónusta · Heimili og lítil fyrirtæki
Tækni sem virkar.Verð sem liggur fyrir.
Wi-Fi, 4G/5G í sumarbústaði, snjallheimili, vefsíður og hýsing. Við leysum málið, útskýrum það á mannamáli - og þú veist verðið áður en við byrjum.
- Verð
- Öll upphafsverð birt á vefnum
- Óháð
- Stillum búnað frá öllum fjarskiptafélögum
Teikning 01 - Netdekkun, einbýli
Beinir og tveir aðgangspunktar með snúrutengingu. Jafnt samband í öllum rýmum.
Hvar liggur vandinn?
Veldu það sem á við - eða lýstu vandanum með eigin orðum og við vísum þér rétta leið.
- 01
Net & Wi-Fi
Wi-Fi nær ekki um allt húsið?
Við finnum hvers vegna netið er hægt eða dettur út - og lögum það. Stundum dugar ný stilling, stundum þarf betri staðsetningu eða auka aðgangspunkt.
HeimiliFyrirtæki - 02
Internet í sumarbústað
Lélegt netsamband í sumarbústaðnum?
4G/5G-net fyrir sumarhús. Við mælum sambandið, finnum bestu staðsetninguna og setjum upp beini og Wi-Fi sem heldur tengingu.
HeimiliFyrirtæki - 03
Snjallheimili
Viltu láta snjalltækin á heimilinu vinna saman?
Lýsing, hiti, skynjarar, lásar og myndavélar - sett upp í eitt kerfi sem allir á heimilinu geta notað.
Heimili - 04
Hraðar og skýrar vefsíður fyrir lítil fyrirtæki. Virka í síma, finnast á Google og eru auðveldar í rekstri.
Fyrirtæki - 05
Hýsing & sérlausnir
Þurfa kerfin í rekstrinum að tala saman?
Rekin vefhýsing, tengingar milli kerfa, sjálfvirkni og sérsmíði fyrir lítil fyrirtæki.
Fyrirtæki
Þú veist verðið áður en við byrjum.
- Upphafsverð eru birt
- Öll verð á vefnum eru upphafsverð fyrir einföld verk. Engin þörf á að hringja til að fá hugmynd um kostnað.
- Verð áður en vinna hefst
- Ef verkið reynist umfangsmeira færðu nýtt verð og samþykkir það áður en lengra er haldið.
- Engin óvænt gjöld
- Búnaður og aukavinna koma fram í tilboðinu - ekki á reikningnum eftir á.
Verðskrá
ISK · m. vsk.
- Net & Wi-FiGreining og lagfæring á staðnumfrá 14.900 krónum
- Internet í sumarbústaðMæling og uppsetning á staðnumfrá 24.900 krónum
- SnjallheimiliUppsetning og stillingarfrá 29.900 krónum
- VefsíðurEinföld vefsíðafrá 69.900 krónum
- Hýsing & sérlausnirRekin hýsingfrá 1.990 krónum á mánuði
- Hýsing & sérlausnirSérlausnir og forritunfrá 12.900 krónum á klukkustund
Svona gengur þetta fyrir sig.
01Beiðni
Þú lýsir vandanum
Í gegnum formið eða í tölvupósti. Nokkrar línur duga - myndir hjálpa.
02Tilboð
Þú færð verð
Við svörum með mati á verkinu og verði. Ekkert er bindandi fyrr en þú samþykkir.
03Verk
Við leysum málið
Á staðnum eða í fjarvinnu, eftir því hvað hentar verkinu.
04Tengt
Þú veist hvað var gert
Stutt yfirferð og skráning á stillingum og búnaði, svo næsta skref sé auðvelt.
Einn aðili fyrir heimilið og reksturinn.
Heimili
Netið, bústaðurinn og snjalltækin.
Fyrir heimili sem vilja að tæknin virki - án þess að þurfa að verða sérfræðingar sjálf.
Fyrirtæki
Vefurinn, kerfin og netið í rekstrinum.
Fyrir lítil fyrirtæki sem þurfa traustan tæknilegan bakhjarl án þess að ráða starfsmann í það.
Það sem þú getur gengið að.
Óháð
Á engra vegum nema þinna
Við seljum ekki áskriftir og erum ekki á vegum neins fjarskiptafélags. Ráðgjöfin snýst um það sem hentar þér.
Skýrt
Verð sem stenst
Upphafsverð eru birt og þú samþykkir verð áður en vinna hefst. Ef eitthvað breytist heyrirðu það frá okkur fyrst.
Mannamál
Útskýrt á mannamáli
Við segjum þér hvað var að og hvað við gerðum - án tæknimáls, nema þú viljir það.
Frágangur
Snyrtilega gengið frá
Búnaður á réttum stað, snúrur frágengnar og stillingar skráðar svo auðvelt sé að taka upp þráðinn síðar.
Tökum við nýjum verkefnum
Segðu okkur hvað er að.
Lýstu vandanum í nokkrum orðum. Við svörum með næstu skrefum og verði - án skuldbindingar.
Við svörum beiðnum innan eins virks dags.