Hvað verður um upplýsingarnar sem þú sendir okkur.
Netlausn ehf. ber ábyrgð á upplýsingum sem berast í gegnum þennan vef.
- Hvað við fáum
Þegar þú sendir beiðni um tilboð eða skilaboð fáum við það sem þú skrifar í formið: nafn, netfang og, ef þú gefur það upp, símanúmer, nafn fyrirtækis, póstnúmer, staðsetningu, núverandi vefsíðu og lýsingu á verkinu.
Myndir og skjöl sem þú hengir við beiðni geymum við með henni. Hafðu í huga að myndir geta sýnt heimili þitt eða búnað; sendu ekki meira en þarf.
Við biðjum ekki um kennitölu á vefnum.
- Til hvers
Eingöngu til að svara beiðninni, meta verkið og gera þér tilboð - það er, ráðstafanir sem þú biður um áður en samningur er gerður. Við notum upplýsingarnar ekki í markaðsskyni og seljum þær ekki.
- Hvert þær fara
Beiðnin er vistuð í gagnagrunni vefsins og send í viðskiptamannakerfi okkar (SuiteCRM), þar sem við vinnum úr henni. Starfsfólk fær tilkynningu í tölvupósti um nýja beiðni.
Við deilum upplýsingunum ekki með öðrum nema þjónustuaðilum sem reka þessi kerfi fyrir okkur, eða ef lög krefjast þess.
- Hve lengi
Afrit vefsins af beiðni og viðhengjum hennar er eytt sjálfkrafa 6 mánuðum eftir að hún berst.
Í viðskiptamannakerfinu geymum við beiðnina á meðan hún er í vinnslu og eins lengi og viðskiptin gefa tilefni til, og ekki lengur en lög um bókhald og skatta krefjast ef verk er unnið.
- Vefmælingar
Við mælum notkun vefsins með PostHog (gagnaver í ESB) án vafrakaka: ekkert er vistað í vafranum þínum. Við sjáum hvaða síður eru skoðaðar og hvort form eru send, en ekki hvað skrifað er í þau.
Þegar beiðni er send skráum við tilvísunarnúmer hennar í mælingunum, til að sjá hvaðan beiðnir koma. Þá er hægt að tengja þá heimsókn við beiðnina og þar með við þig.
Til að verjast misnotkun á formunum er IP-tala sendanda geymd í minni vefþjónsins í allt að sólarhring.
- Réttindi þín
Þú getur beðið um að fá að sjá upplýsingarnar sem við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, eða andmælt vinnslu þeirra. Sendu okkur línu á [email protected].
Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingar um þig getur þú kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).