Fara beint í efni
02 - Internet í sumarbústað

Lélegt netsamband í sumarbústaðnum?

4G/5G-net fyrir sumarhús. Við mælum sambandið, finnum bestu staðsetninguna og setjum upp beini og Wi-Fi sem heldur tengingu.

Í sumarbústað ræðst netsambandið oft af örfáum metrum. Beinir í glugga sem snýr að sendi getur skilað margföldum hraða miðað við beini á eldhúsborðinu.

Við mælum sambandið á staðnum, veljum staðsetningu og stillum beini og SIM-kort svo netið sé stöðugt - líka fyrir myndavélar, hitastýringu og annan búnað sem þarf að vera tengdur þegar enginn er í bústaðnum.

Þú ræður hvaða fjarskiptafélag og áskrift þú velur. Við getum bent á hvaða sendir er næstur og hvaða tíðnisvið gefa best samband á svæðinu.

Internet í sumarbústað

Heimili · Fyrirtæki

Mæling og uppsetning á staðnum

frá 24.900 krónum

Akstur, ef við á, kemur fram í tilboði áður en verkið er staðfest.

Fá tilboð

Verð með vsk. · Án skuldbindingar

01Kannastu við þetta?

Algeng einkenni

  • Netið hægist eða dettur út þegar fleiri eru í bústaðnum
  • Samband aðeins við einn glugga
  • Myndavélar og hitastýring detta úr sambandi yfir veturinn
  • Beinir sem enginn veit hvernig er stilltur
  • Wi-Fi nær ekki út á pall eða í gestahúsið
02Það sem við gerum

Innifalið

  1. 01Mæling á 4G/5G-sambandi á staðnum
  2. 02Val á staðsetningu fyrir beini
  3. 03Uppsetning og stilling á beini og SIM-korti
  4. 04Wi-Fi um bústaðinn - og út á pall ef þarf
  5. 05Stillingar svo búnaður haldist tengdur þegar enginn er á staðnum
  6. 06Ráðgjöf um utanáliggjandi loftnet ef þess þarf
03VerðUpphafsverð

Verð

Verð eru upphafsverð fyrir einföld verk. Ef verkið er umfangsmeira færðu verð áður en lengra er haldið.

  • Mæling og uppsetning á staðnum

    Akstur, ef við á, kemur fram í tilboði áður en verkið er staðfest.

    frá 24.900 krónum
  • Utanáliggjandi loftnet

    Í boði síðar, fyrir staði þar sem innanhússbúnaður dugar ekki.

    Tilboð
04Tæknilegar upplýsingar

Fyrir þau sem vilja vita meira

Mælingar
  • Merkjastyrkur og gæði - RSRP, RSRQ, SINR
  • Val á sendi og tíðnisviði
  • Samanburður á staðsetningum innan bústaðar
Búnaður
  • 4G/5G-beinar með tengjum fyrir ytra loftnet
  • Aðgangspunktar fyrir stærri hús eða fleiri byggingar
  • Utanáliggjandi loftnet (í boði síðar)
05Spurningar

Algengar spurningar

Hvaða fjarskiptafélag er best fyrir bústaðinn?

Það fer eftir staðsetningu. Við mælum sambandið á staðnum og segjum þér hvaða sendir og tíðnisvið gefa best samband þar sem bústaðurinn stendur.

Dugar 4G eða þarf ég 5G?

Víða skilar gott 4G-samband meira en nógu miklu. 5G hjálpar mest ef sendir er nálægt. Mælingin segir til um það.

Þarf ég að vera á staðnum?

Það er best, en ekki nauðsynlegt ef hægt er að semja um aðgang. Við förum yfir niðurstöðurnar með þér eftir á.

06Tengd þjónusta

Tengd þjónusta

  1. 01

    Við finnum hvers vegna netið er hægt eða dettur út - og lögum það. Stundum dugar ný stilling, stundum þarf betri staðsetningu eða auka aðgangspunkt.

    frá 14.900 krónumHeimiliFyrirtæki
  2. 03

    Lýsing, hiti, skynjarar, lásar og myndavélar - sett upp í eitt kerfi sem allir á heimilinu geta notað.

    frá 29.900 krónumHeimili

Internet í sumarbústað

frá 24.900 krónum
Fá tilboð

Tökum við nýjum verkefnum

Fáðu verð í verkið.

Segðu okkur frá aðstæðum og við svörum með mati og verði. Internet í sumarbústað - án skuldbindingar.

Við svörum beiðnum innan eins virks dags.